Hætt í bili allavega

27. maí 2008 klukkan 23:17
Ég ætlaði bara að láta vita að það verður ekki bloggað hérna á næstunni, ég einfaldlega nenni því ekki, þannig að þið getið hætt að kíkja hérna inn takk fyrir takk.

úff að nenna þessu !!

13. maí 2008 klukkan 22:55

Ófrísk að átjánda barni

Michelle Duggar fær líklega blómvönd eða tvo á mæðradaginn á morgun. Michelle, sem er fjörtíu og eins árs, er nú ófrísk að átjánda barni sínu og eiginmannsins, Jims Bob Duggar.

Börnin sautján eru á aldrinum níu mánaða til tuttugu ára, og heita öll nöfnum sem byrja á J. Hjónin búa ásamt börnunum í 650 fermetra húsi í Tontitown í Arkansasfylki, og kenna þeim heima. Enda kannski einfaldast, þar sem þau þurfa rútu til að ferja hópinn.

Hjónin segjast ætla að halda áfram að eignast börn svo lengi sem guð vill.

TAKK DÓRA ;)

05. maí 2008 klukkan 22:21
Dreki DýrfjörðAf því það kemur ekkert blogg hérna, þá ætla ég bara að segja ykkur brandara. Þessi er svo fyndinn að ég get ekki hætt að hlægja...bwahahaha

Eldri dama gengur inn í Gull og Silfur á Laugavegi og fer að skoða í kring um sig í rólegheitunum.

Hún sér gríðarlega fallegt demantaarmband og gengur að sýningaborðinu til að skoða það nánar.

Þegar hún svo beygir sig yfir borðið til að sjá betur, prumpar hún óvart.
Hún fer mjög hjá sér og lýtur vandræðaleg kringum sig til að athuga hvort nokkur hafi tekið eftir þessu litla slysi hennar og vonar jafnframt að það komi ekki einhver sölumaður akkúrat meðan lyktin svífur um hana.

Hún snýr sér varlega við og til að fullkomna martröðina, stendur ekki bara sölumaður beint fyrir aftan hana !?


Svellkaldur sölumaðurinn sýnir fullkomna fagmennsku þegar hann heilsar eldri dömunni og spyr hvort hann getir aðstoðað hana á einhvern hátt?


Mjög vandræðaleg, vonar sú gamla að sölumaðurinn hafi ekki staðið fyrir aftan hana einmitt á þessu viðkvæma augnabliki rétt áður, spyr hún, hvað kostar svo þetta fallega demantaarmband?


Hann svarar,

Kæra frú, ef að þú prumpaðir bara yfir því að lýta á það, áttu eftir að skíta upp á bak þegar þú heyrir verðið !!
#4
05. maí 2008 klukkan 17:00

Þröngt mega sáttir sofa

21. apríl 2008 klukkan 22:00
Börn eru misjöfn eins og þau eru mörg. Sum sofa best í eigin rúmi, meðan önnur vilja sofa í rúmi foreldra sinni.
Sérfræðingar sem aðhyllast "fjölskyldurúmið" svokallaða segja gott fyrir börn að sofa hjá foreldrum sínum, því þannig njóti þau sama öryggis, ástar og stuðnings á nóttu jafnt sem degi, í stað þess að glíma við ótta, reiði og fráhvarf nótt eftir nótt.
Börn sem fynna til öryggis um nætur með ástríku foreldri sínu verða færari sem fullorðnir einstaklingar að takast á við óumflýjanlega streituvalda lífsins.
Ást og öryggi á bernskuárum barns mun því langt í frá spilla því, en er þess í stað eins og innlögn í banka: digur sjóður trausts, sjálfsálits og innra öryggis sem barnið getur notað í verkefnum lifsins.


ÉG VISSI AÐ ÉG VÆRI AРGERA EITTHVAÐ RÉTT Koss 

10. apríl 2008 klukkan 13:17
Jæja það er alltaf verið að biðja um bloggfærslu hérna, en það er nú bara voðalega lítið að frétta það er nú aðal ástæðan fyrir bloggleysinu, lífið gengur eitthvern veginn sinn vanagang, sem sagt sofa, éta, hugsa um Gunnar, hundana og leita sér að vinnu sem mætti alveg ganga betur, ætli maður endi ekki eins og flestir sem maður þekkir að pakka niður og flytja sig á suðurlandið en tíminn mun leiða það allt í ljós. Ég sett inn skoðanakönnun þannig að þig getið reynt að hafa eitthver áhrif á þá ákvörðun.
Annars er ég búin að fá hverja pestina á fætur annari alveg ömulegur andskoti, ég er nefnilega ALDREI veik ég skil þetta ekki ég vona að veikindin séu á undanhaldi núna, krossa putta og allt það.
Svooo eitt enn ef að þú lesandi góður telur þig kunna fyndna sögu (sem sagt brúðkaupsvæna) af mér og/eða Hákoni þá máttu senda mér línu og skemmtanastjórinn mun hafa samband :)
Lengra höfum við þetta ekki í bili ég vona að þetta haldi ykkur rólegum í nokkra daga :)

02. apríl 2008 klukkan 22:51
EKKERT AÐ FRÉTTA !!

Frábær helgi ;)

17. mars 2008 klukkan 00:14
Ég verð bara að núa þessu um nasirnar á þeim sem áttu ekki eins skemmtilega helgi og við :)
Það er búið að vera geggjað veður alla helgina eins og flestir vita kannski..
hvað er betra í svona veðri en að þjóta um fjöll og fyrnindi á snjósleða já eða böggýbíl  ;)
Já við erum búin að vera í sveitinni meira og minna alla helgina á snjósleða og Árni frændi fór með mig í geðveika böggýbíla ferð í dag maður vissi aldrei hvort hann var að fara upp eða niður til hægri eða vinstri enda spurðu áhorfendur þegar við komum til bara hvort ég hafi ekki verið hrædd??? óóóóó nei skal ég segja ykkur, þrátt fyrir mína bílhræðslu þá var þetta bara GEÐVEIKT... ég sem ætlaði sko aldrei að prufa þennann bíl eins og allir hinir en ég er hrædd um að núna verði ekki aftur snúið Árni fær örugglega ekki stundlega frið fyrir mér hehe
Lilja Kristín fékk líka að fara en Hákon fór með hana svona nettan sunnudagsrúnt bara hehe en það var samt nóg til þess að hún ætlar sko að fá sér svona bíl hehe :)
Snjósleðinn var ekkert verri en þar var maður auðvitað við stýrið sjálfur, það er náttúrulega bara klikkað að geta farið bara það sem manni dettur í hug, ég fór td upp í einn dal sem mig hefur alltaf langað að sjá en aldrei nent að labba þangað
 og dalurinn var sko allt öðruvísi en ég var búin að ímynda mér, algjör snilld bara gaman að þessu ;)
Núna er ég gjörsamlega að drepast úr harðsperrum og ég efast um að ég komist út úr rúminu á morgun miðað við hvernig ég er núna allavega úff en það kemur í ljós vonum það besta bara.
Jæja ég nenni ekki þessu pikki lengur, næst á dagskrá er bara djamm og slökun á páskunum en ég læt ykkur KANNSKI vita af því seinna hehe
later

góður þessi :)

13. mars 2008 klukkan 11:24
Það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur.
Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman þá dótturina sem var að gifta sig í það skiptið, að vera fljóta að skrifa heim eftir að hún fluttist að heiman og segja gömlu konunni hvernig kynlífið væri hjá hinni nýgiftu.

Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni.
Á því stóð aðeins “Myllukökur Myllubrauð”.
Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún vað að blaða í Dagblaðinu síðar um kvöldið.
En þar stóð “Myllukökur Myllubrauð…… ávallt seðjandi”.
Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur sinni, henni væri vel sinnt.

En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni.
Þar stóð aðeins “Ingvar og Gylfi”. Kella var nú fljót að leita að Dagblöðunum og fann að lokum
auglýsingu frá Ingvar og Gylfa þar sem stóð “Nýi rúmgaflinn frá okkur……King size og extra langur”.
Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari dóttur sinni.

Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið.
Í bréfinu stóð aðeins eitt orð “Flugleiðir”.
Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á endanum fann hún eina.
En eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kerlinguna því þar stóð: “Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla áfangastaði!!!!!!!!

27. febrúar 2008 klukkan 21:20
Jæja loksins eitthvað sem er ekki stolið frá mér, það er nú bara afþví að ég lenti í svo fyndnu í gærkvöldi :)
Sko ég fór í sturtu sem er náttúrulega ekki frásögufærandi nema þegar ég er komin úr sturtunni þá er mér eitthvað litið á tærnar á mér og O MY GOD !!! ég var alveg með síð svört hár á tánum oojjjjjjjjj hvað er í gangi hugsaði ég hvernig er hægt að vera svoa loðin á tánum... en þegar betur var að gáð þá var þetta hundaháralufsa hehe sem betur fér, ég efast um að það sé hægt að hafa svona svört síð hár á tánum en maður veit náttúrulega aldrei fólk er eins misjafnt og það er margt.
Jæja svo í dag þá fékk ég nú netta skitu, ég helt ég væri búin að týna bíllyklunum úti sem sagt, sumir hugsa eflaust hva akkuru sótttiru þá ekki bara aukalykilinn ??? það er einmitt málið sko það er bara 1 lykill af bílnum ég er ekki alveg að tíma að láta forrita annann lykil fyrir tugi þúsunda.
En allavega var þetta þannig að ég,Gunnar og Birta ætluðum að skreppa í búðina það var búið að festa alla í bílinn og allt klárt nema hvað að lyklarnir voru ekki í vasanum og ég var sko nýbúin að setja  þá í vasann bara þegar við löbbuðum út
ég leitaði út um allt í snjónum og út um allt, ég var búin að gefast upp búin að losa krakkann úr bílnum aftur og allt og var á leiðinni að hringja í kallinn og segja honum að bíllinn yrði ekkert hreyfður fyrr en í vor eeennn þá fann ég þá sem betur fér fjúff
þeir voru inn í bílnum, höfðu dottið eitthvernveginn upp úr vasanum og á milli sætissins og drsalsins á milli sætana, ég var samt búin að leita það ég bara sá þá ekki. en allt er gott sem endar vel :)
OOO það verður svo gaman á laugard. Gunnar verður í pössun á Þingeyri og það á sko að taka á því DJÖFULL verðu gaman er þaggi Dreki Dýrfjörð ?? ;)
það klikkar sko aldrei að fara á djammið með fyrr nefndum dreka
en eitthverjir fleiri eru væntanlegir og ef þér lesandi góður langar að mæta þá er bara að hafa samband ;)
jæja sjónvarpið kallar later
Big Mama OUT
endilega svarið könnunni er að vinna að smá verkefni og þarf að vita þetta takk ;)

21. febrúar 2008 klukkan 23:18
Hann sagði . .. Ég skil ekki af hverju þú ert í brjóstarhaldara,
það er ekkert til að halda.
Hún svarar - Þú ert í nærbuxum, er það ekki?


Hann spyr .. .. .Eigum við að reyna að skipta um stellingu í kvöld?

Hún svarar . . Það er frábær hugmynd - þú stendur við strauborðið á meðan
ég sit í sófanum.


Hann spyr . . . Hvað ertu búin að gera við alla matarpeningana sem
ég lét þig fá?

Hún svarar . Snúðu þér á hlið og líttu í spegil!


Skrifað á vegg á kvennaklósetti . .. "Maðurinn minn eltir mig
hvert sem ég fer" Skrifað rétt fyrir neðan . " Nei það er ekki satt"



Spurning.
Hvernig sést að maður er að skipuleggja framtíðina?
Svar.
Hann kaupir 2 kassa af bjór.



Spurning.
Af hverju eru giftar konur feitari en ógiftar?
Svar.
Þegar þær ógiftu koma heim og sjá hvað er í ísskápnum - fara þær í rúmið.
Þegar þær giftu koma heim og sjá hvað er í rúminu - fara þær í ísskápinn.


Maðurinn spyr guð:
"Af hverju skapaðirðu konuna svona fallega?"
Guð svarar:
"Svo þú myndir elska hana."
En Guð, "Af hverju hafðirðu hana svona heimska?"

Guð svarar:
"Svo hún elski þig."

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...